Galatians 6

1Bræður! Ef einhver misgjörð kann að henda mann, þá leiðréttið þér, sem andlegir eruð, þann mann með hógværð. Og haf gát á sjálfum þér, að þú freistist ekki líka. 2Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists. 3Sá sem þykist vera nokkuð, en er þó ekkert, dregur sjálfan sig á tálar. 4En sérhver rannsaki breytni sjálfs sín og þá mun hann hafa hrósunarefni í samanburði við sjálfan sig, en ekki miðað við aðra, 5því að sérhver mun verða að bera sína byrði. 6En sá, sem uppfræðist í orðinu, veiti þeim, sem uppfræðir, hlutdeild með sér í öllum gæðum. 7Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera. 8Sá sem sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera glötun, en sá sem sáir í andann, mun af andanum uppskera eilíft líf. 9Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp. 10Þess vegna skulum vér, meðan tími er til, gjöra öllum gott og einkum trúbræðrum vorum. 11Sjáið, með hversu stórum stöfum ég skrifa yður með eigin hendi. 12Allir þeir, sem vilja líta vel út að holdinu til, það eru þeir, sem eru að þröngva yður til að láta umskerast, einungis til þess að þeir verði eigi ofsóttir vegna kross Krists. 13Því að ekki halda einu sinni sjálfir umskurnarmennirnir lögmálið, heldur vilja þeir að þér látið umskerast, til þess að þeir geti stært sig af holdi yðar. 14En það sé fjarri mér að hrósa mér af öðru en krossi Drottins vors Jesú Krists. Sakir hans er ég krossfestur heiminum og heimurinn mér. 15Umskurn eða yfirhúð skipta engu, heldur að vera ný sköpun. 16Og yfir öllum þeim, sem þessari reglu fylgja, sé friður og miskunn, og yfir Ísrael Guðs. 17Enginn mæði mig héðan í frá, því að ég ber merki Jesú á líkama mínum.
Copyright information for Icelandic